|
Helvítis Pistlar (Upprifjun)
|
18.04.2006 01:22:25 / Elli
Í dag
bölva ég menntakerfinu okkar.
Áður fyrr var eðlilegt að fólk lærði hin ýmsu fög, hvort
sem um tungumál var að ræða eða eitthvað annað. Danskan var kennd
þar sem Ísland tilheyrði því landi áður fyrr. Kennslan
var þá háð menningunni sem ríkti á þeim tímum...síðan kom
þróunin.
“ Öll þróun skilar bara íllu og anskotans óþægindum hjá fólki
“
Í dag
er mest öll helvítis kennslan komin út fyrir eðlileg
rök.
Til dæmis er
enn verið að kenna dönskuna sem skyldu fag, nema að þú hafir búið á
einhverju öðru norðurlandi þá færðu það metið. Til dæmis þá eru
franskan og spænskan töluð í fleiri löndum en helvítis
Danskan. Til hvers í andskotanum er verið að púkka upp
á þessa gömlu hefð ?
Það er alveg magnað að á þessu herrans ári 2006, skuli
þessir helvítis hálfvitar sem móta kennslustefnuna skuli ekki enn
vera búnir að taka hausinn úr rassgatinu og fylgjast með því sem
gengur og gerist í þjóðfélaginu í dag. Það sem ég vil
sjá kennt í skólum í dag er akstursfræði/ökukennsla, þar sem börnum
frá 14 ára aldri er kennt allt sem viðkemur akstri. 3
ár í mótun fyrir ökupróf finnst mér þess virði, þá líka kannski
fækkar þessum dauðaslysum hjá ungu fólki sem hefur ekki reynsluna
né þekkingu.
Flestir unglingar sem ég hef kynnst í gegnum árin, að mér
meðtöldum, hafa ekki hundsvit á fjármálum fyrr en framhaldskólanámi
er lokið, og sumir jafnvel ekki einu sinni þá. Hvernig væri nú að
fara að kenna okkar krökkum meira um fjármál og hvað er það sem er
að tikka í þessu þjóðfélagi. Fínt fyrir yngstu börnin að hafa
fíflið í bláu náttfötunum sem kennir allt um Latabæjar hagkerfið,
en hvar er kennslan fyrir þau sem eru komin yfir það tímabil
?
Sumar af þessum skólabókum sem er kennt eftir eru orðnar
úreldar og löngu tímabært að senda þær á þjóðmynjasafnið. Hvar í
andskotanum er nefndin sem á að sjá um þetta helvíti ? æji já hún
er eflaust í helvítis sumarfríi.
Og nú er búið að stytta sumarfríið hjá þessum krökkum
líka. Hvað í andskotanum gengur á ? Eru krakkarnir í dag svona
tregir að það þarf lengri tíma til þess að kenna þeim, eða eru það
kannski bara kennararnir sem eru ekki að skila sinni vinnu ? Eru
krakkarnir orðnir fleiri en voru, eða eru kennararnir kannski
orðnir færri ? Hvernig væri bara að stokka aðeins upp í þessu
helvítis menntakerfi og endurskoða þau fög sem eru kennd í
dag.
Þegar ég var í skóla var aðbúnaðurinn eins og búast
kannski mátti við þá, milljón helvítis árum síðar er enn fáránlega
slæmur aðbúnaður í mörgum skólum. Hvaða skrifstofu
starfsmaður sem vinnur frá kl.9:00 til 17:00 myndi bjóða sér það,
að sitja á hörðum og óstillanlegum stól allan dagin....enginn. Svo
skilur engin af hverju bakveiki er algengt á Íslandi. Æji þetta er
bara svona ekta Íslensk bakveiki segir svo
heilsugæslulæknirinn.....helvítis hálfvitar.
Það er alveg öruggt að þeir hálfvitar sem sjá um þessi mál
eru ekki að hugsa um hag nemenda, heldur um helvítis budduna, sem
síðan styrkir allskonar helvítis menningarleg uppátæki og borgar
með sömu helvítis buddunni.
Það ætti með
fullri alvöru að stofna stéttarfélag fyrir nemendur og þeirra
hagi.
Það sem
skiptir máli í þessu þjóðfélagi er það sem fólkið
vill
. . . . og
ég vil betri helvítis kennslu og aðbúnað fyrir
nemendur.
Helvítis
Menntakerfið. . .
Helvítis
hálfvitinn sem fann upp Dönsku. . .
Helvítis
þróun. . . . .
. . .
.helvítis fyrrverandi nemandinn ég.
»
23.03.2006 00:24:46 / Elli
Í dag bölva ég flugfélögum.
Áður fyrr þurfti fólk ekki að spá í þessum hlutum. Fáir lögðu í
siglingu til Danmerkur, aðrir flúðu land til Kanada, en flestir
létu sér nægja að ferðast innanlands á hestum. . . svo kom
þróunin.
Öll þróun skilar bara íllu og anskotans óþægindum hjá
fólki “
Í dag er þetta orðið eitt allsherjar vandamál.
Maður er ekki sannur Íslendingur nema að fara í utanlandsferð,
minnst einu sinni á ári. Ferða bæklingar flæða inn til landsmanna
með súpertilboð til allra helvítis landa í heiminum. Til þess að
vera ekki útskúfaður úr ferða tískunni, ákvað ég að fara í ímyndaða
utanlandsferð vegna skorts á peningum.
Fyrst fékk ég frí í vinnunni í 3 vikur, síðan pakkaði ég því
helsta í ferðatösku og handfarangur, sem ég síðan tók með mér í
ímyndaða flugvél. Ég hafði samband við póstinn og Fréttablaðið og
bað um breytingu á heimilisfangi, hvert rukkanirnar og sorpritin
ætti að fara, í póstkassa merktan “Sameign” . Breytti skilaboðunum
á talhólfinu mínu og slökkti á símanum. Ég keypti 1 kíló af brúnku
kremi, kvaddi vini og vandamenn….og fór síðan að sofa.
Þvílíkt ferðalag, alveg meiriháttar, ég og mínar innri raddir
skemmtum okkur konunglega, það var svo mikið hlegið, trallað og
þvílíkar konur.
Þess á milli sem ég svaf ekki var étið og horft á bíómyndir….fínt
ferðalag.
Ég kom heim í gær, eftir að hafa verið á ímyndaðri sólarströnd
með bjór og senjoritur. Brúnn og fallegur eftir 3 vikur í rúminu.
Flugþreitan sagði aðeins til sín (eða kannski var þetta bara
svefngalsi) en ég hélt til vinnu á þeim tíma eins og um var samið.
Það sem maður leggur á sig til að fitta inn í þetta helvítis
tískubólu ferðamanna helvíti. Hvernig væri nú að fá Írana til þess
að sjá um okkar varnir, þá fengi enginn eflaust að yfirgefa landið
og yrðu að ferðast innanlands….og allir yrðu helvíti fölir á hörund
eins og ég.
Hvernig í andskotanum geta flugfélög alltaf boðið lægra
og lægra verð, þegar allt hækkar og hækkar ?...hvað í
andskotanum eru þessi fyrirtæki búin að mjólka okkur lengi með
milljarða króna álaggningu….helvítis hálfvitar. Nú er komin tími
til þess að þessi helvítis flugfélög skili til baka okkar peningum
í formi utanlandsferða.
Þangað til að allt verði frítt, ferðast ég bara í huganum, og
skemmti mér vel. Alveg nóg af áfengi, konum og sól. Kemst á staði
eins tunglið, niður á hafsbotn og jafnvel skoðunarferð til
helvítis.
Það sem skiptir máli í þessu þjóðfélagi er það sem
fólkið vill.
. . og ég vil ókeypis utanlandsferðir.
Helvítis ferðalög. . .
Helvítis hálfvitinn sem fann upp fargjöld. . .
Helvítis þróun. . .
. . . . . .helvítis tísku-bólu-ferðalangurinn ég.
»
28.02.2006 16:30:44 / Elli
Í dag bölva ég heilbrigðiskerfinu.
Áður fyrr
var eldra fólki sýnd virðing. Fólk bjó þá flest í heimahúsum fram á
síðasta dag, þó að sumir fengu að búa á stofnunum þar sem hægt var
að hlúa að því. . .svo kom þróunin.
“ Öll þróun skilar bara
íllu og anskotans óþægindum hjá fólki “
Í dag er næstum öllum sama hvað verður um gamalt
fólt.
Með fólksfjölguninni á Íslandi fylgir fleira eldra fólk en áður
var. En heilbrigðiskerfið höndlar ekki þessarri
fjölgun.
Allar stofnanir eru kjaftfullar, og bíður veikt eldra fólk, sem
ekki getur hugsað um sig sjálft, eftir að einhver hrökkvi upp af,
til þess að það losni pláss.
Hvað í andskotanum eru þessir menn að hugsa ? Vita þeir ekki að
þeir verða á endanum gamlir líka...vilja þeir að svona verði farið
með þá líka ? helvítis hálfvitar.
Eldra fólk hefur byggt upp þetta samfélag, og hvað fær það að
launum ? ...ekkert nema skítkast frá yfirvöldum, sem svo lokar sumt
þetta fólk inn á stofnunum svo að engin þurfi að horfa upp á gamalt
fólk á Íslandi...allir ungir og fallegir...helvítis
kjaftæði.
Þetta eldra fólk er sumt búið að borga sinn lífeyrissjóð í langan
tíma, og fyrir hvað...lítinn vasapening á mánuði, rétt til þess að
draga andann. Kannski er það markmiðið hjá þessum ösnum að stytta
þennan andadrátt hjá þessu fólki, svo þeir þurfi ekki að borga of
mikið.
Þjónusta fyrir eldri borgara er að mínu mati kjaftæði. Mér finnst
að þegar þú ert komin yfir 60 ára aldur á öll þjónusta að vera
ókepis. Allar ferðir, allur matur, öll skemmtun og dagrastytting.
Þetta fólk er búið að borga sína skatta allan þennan tíma, nú er
komið að ríkinu að taka við.
Það er komin tími
til þess að hætta þessu helvítis kjaftæði og fara að sinna
okkar fólki.
Það sem
skiptir máli í þessu þjóðfélagi er það sem fólkið
vil
. . . . og
ég vil helvítis virðingu fyrir eldra fólki.
Helvítis
heilbrigðiskerfið. . .
Helvítis
hálfvitinn sem fann upp vanvirðingu. . .
Helvítis
þróun. . . . .
. . .
.helvítis umhyggjusami ég.
»
22.02.2006 11:49:48 / Elli
Í dag bölva ég
veðrinu.
Áður fyrr stjórnuðu menn veðrinu. Eftir mikla þurrka var tánings
hreinni mey fórnað fyrir veðurguðina, og viti menn það fór að rigna
og rigndi í allgóðan tíma. . .svo kom þróunin.
“
Öll þróun skilar bara íllu og anskotans óþægindum hjá fólki
“
Í dag er allt farið til andskotans og ekkert skipulag lengur á
veðrinu.
Það rignir á sumrin, það rignir á vorin, það rignir á haustin og
rignir á veturnar. Hvað er um að vera þarna uppi hjá þessum
hálfvitum. Hvurn djöfulinn eru þeir að reykja ?
Ég vil hafa snjó á veturnar, sól á vorin, sumrin og á haustin. Svo
má rigna á næturnar fyrir gróðurinn.
Mér finnst að það sé komin tími til þess að taka upp gamla siði og
fórna kvenmanni fyrir veðurguðina. En þar sem fáar táningsstúlkur
hér á landi eru hreinar meyjar, væri kannski hægt að fórna lítið
notuðum kvenmönnum, kannski rignir þá bara í stuttan
tíma.
Fínt að hafa fórnina um miðnætti, þá er allt orðið þurrt þegar ég
vakna á morgnana.
Þessi helvítis rigning þarf að hætta, þetta er orðið helvíti
þreytt.
Það sem skiptir máli í þessu þjóðfélagi er það sem fólkið
vil
. . . . og
ég vil helvítis reglu á veðrið.
Helvítis
veðurguða hálfviti. . .
Helvítis
hálfvitinn sem fann upp veðurspá. . .
Helvítis
þróun. . . . .
. . .
.helvítis sólskinsbarnið ég.
»
10.02.2006 02:03:37 / Elli
Í dag bölva ég afgreiðslufólki
Áður fyrr var mikill metnaður í því að vera í afgreiðslustörfum,
og fylgdi því mikil ábyrgð að viðskiptavinurinn fengi alla þá
þjónustu sem unnt var að veita. . .svo kom þróunin.
“ Öll þróun skilar bara íllu og anskotans
óþægindum hjá fólki “
Í dag eru allra fjanda kvikindi sett í afgreiðslustörf.
Það er nánast öruggt að allir hafa lent í helvítis ókurteisi og
hálfvitaskap þegar keypt er einhver þjónusta.
Hvert er helvítis metnaðurinn farinn þegar heilalausir hálfvitar
eru að stjórna afgreiðslu.
Ungt fólk er oftast skotspónninn fyrir þessum ásökum, eflaust
stafar það af hluta til af reynsluleysi, en það eldra er ekkert
andskotanum skárra. Það er eins og að flestum er skítsama um hvort
þú komir aftur eða ekki.
Að bíða eftir afgreiðslu, vegna þess að helvítis beljan þarf að
klára símtalið við vinalínuna, er eitthvað sem ég þoli ekki. Ég
hata þegar það skín úr augum fólks “ætlaru að ákveða þig eða
hvað”
Helvítis hálfvitar á myndbandaleigum sem segja mér að myndin sé
æðisleg, þegar það hefur greinilega ekki séð hana. Helvítis
hálfvita bílasölumenn sem segja mér að bíllinn sé bara svona brúnn,
að þetta sé ekki ryð. Helvítis hálfvitinn sem hlustar ekki þegar ég
segi “með öllu NEMA steiktum lauk”. Helvítis hálfvitinn sem trúir
mér ekki þegar ég segi að ég fékk vitlaust til baka. Helvítis
hálfvitinn sem fékk hvergi vinnu, eftir kvíabryggjudvöl, nema í
10-11. Helvítis hálfvitinn sem sagði að græna neon skyrtan væri
inni í dag. Helvítis hálfvitinn sem . . .helvítis hálfvitinn sem. .
.það er endalaust hægt að telja upp hálfvita í afgreiðslustörfum í
dag.
Þessi persónulega þjónusta er við dauðans dyr.
Hraðbankar er til þess að fólk þurfi ekki að afgreiða þig,
heimabankar er til þess að fólk þurfi ekki að horfa á þig.
Bílalúgur eru til þess að þú stoppir ekki lengi. Það liggur við að
eina persónulega þjónustan sem boðin er uppá í þessu þjóðfélagi í
dag er kynlífs þjónusta, sem eflaust kostar fúlgur fjár.
Og þið þarna helvítis vinnuveitenda hálfvitar, það á ekki að
láta erlent fólk í afgreiðslustörf, ef það hefur ekki náð taki á
okkar tungumáli. . .special price for you my friend. . .virkar ekki
á Íslandi, helvítis hálfvitar.
Það sem skiptir máli í þessu þjóðfélagi er það sem
fólkið vil
. . . . og ég vil helvítis almennilega
afgreiðslu
Helvítis afgreiðslu hálfviti. . .
Helvítis hálfvitinn sem fann upp ókurteisi. . .
Helvítis þróun. . . . .
. . . .helvítis viðskiptavinurinn ég.
»
02.02.2006 01:47:10 / Elli
Í dag bölva ég trúnni.
Áður fyrr þegar menn gengu í skinnum og bjuggu í hellum, trúðu
þeir á sjálfan sig. Að fæða sig og sína nánustu og verja gegn
ókunnugum sem ráfuðu inn á þeirra svæði. . .en svo kom þróunin.
“ Öll þróun skilar bara íllu og anskotans óþægindum hjá
fólki “
Í dag er öldin greinilega önnur. Allt snýst um trúnna í
dag, á einn eða annan hátt.
Þegar ég var lítill var ég strax settur í einhversskonar trúar
kennslu. Þar sem foreldrarnir mínir voru ekki strangtrúaðir
einstaklingar, voru þau ekki viss um hvert ætti að senda mig.
Þannig að til að vera viss um að ég fengi nú réttu kennsluna, sendu
þau mig í allt sem var í boði í okkar litla samfélagi. Á virkum
dögum eftir skóla fór ég í kaþólska kirkju, þar sem ég lærði að
sveifla reykelsi eins og jójó. Á Sunnudögum var ég sendur í
Fíladelfiu, þar sem ég lærði að syngja eins og hálfviti með
hægðartregðu. Skýrður, fermdur, skráður í þjóðkirkjuna og á endanum
gifti ég mig í Fríkirkjunni.
Það er kannski ekkert skrítið að ég hafi öðruvísi skoðanir á
trúnni en aðrir.
Hvaða helvítis andskotans kjaftæði er þessi trú og icona dyrkun
orðin ? Öll kristni trú er byggð á bók. . .hvaða helvítis kjaftæði
er búið að troða í hausinn á jarðarbúum í langan tíma.
Þetta skáldrit sem samanstendur af smásögum, sem að virðast vera
samt endalausar vegna erfiðs lesturs, og þegar betur er að gáð, þá
er þetta allt sama helvítis kjaftæðið.
Á fyrsta degi skapaði hann heiminn og svo skapaði hann
eitthvað annað, og annað, held að hann hafi skapað ljósið á 6 eða 7
degi. . .hvurn djöfulinn var hann að gera í myrkrinu allan þennan
tíma ?
Adam og Eva eignuðust nokkra syni sem hétu bla, bla, bla, bla og
allir giftust þeir. . . . hverjum í andskotanum ? það var enginn
annar til samkvæmt biblíunni. . . helvítis kjaftæði.
Trúin er komin langt út fyrir sín velsæmis mörk. Í flestum
Kaþólskum kirkjum glansar allt í skíra gulli og flestir sem sækja
þangað messu eru fátækir...skrítið, helvítis kirkjan situr á öllum
peningunum.
Áður fyrr gekk kirkjan yfir jarðarkringluna með sínum helförum
og drápu alla sem ekki fóru eftir þeirra trú, milljónir manna
drepnir og þeir tala svo um kærleika og frið...hálfvitar. Kirkjan
er búin að misnota sitt vald til ystu æsar og byggja kirkjur útum
allt. Af hverju þarf að fara í kirkju, er bara þar sambandið við
guð ? Á hann ekki GSM ? Er betra að ná sambandi á Sunnudögum ? Er
hann þá líka í fríi ?. . . .helvítis kjaftæði.
Kirkjan er orðið svo mikið fyrirtæki að það hálfa er helvíti of
mikið. Hvernig í andskotanum getur þetta gengið ? Hver segir að það
þurfi að sitja á skólabekk í einhver helvítis 5 ár til þess að geta
talað um guð við fólk ? Halda þeir að fólk séu hálfvitar sem ekki
kunna að lesa ? Hvernig er hægt að fræðast um eitthvað sem ekki er
til ? Hvurn andskotan þarf að læra í 5 ár ? Að drekka messuvín án
þess að æla ?
Svo er það annað að mörg trúarbrögð trúa á sama bullið, nema að
því að einhver helvítis hálfviti þýddi skáldsöguna öðruvísi, þá er
allt í einu komið nýtt trúarbragð.
Helvítis andskotans öfgatrúarhópa helvíti er eitthvað sem ég
fyrirlít. Mér er sama hvort þú sért Kristin, Múslimi, Hindúi,
Búdda, Gyðingur, Votti, eða bara einhver helvítis hálfviti sem
oftúlkar sína trú. Þú mátt rotna í helvíti auminginn þinn, öllum
öfgum fylgir ógæfa.
Fólk drepur útaf trúnni, heilu helvítis stríðin eru háð útaf
trúnni, fólki er útskúfað úr samfélagi ef það trúir á eitthvað
annað.
Það þarf engin að segja mér að ég þurfi að haga mér og lifa mínu
lífi eftir einhverri bók, ég geri bara það sem mér andskotans
sýnist.
Ég ætla að stofna trú, einstaklingstrúin, engin kirkja, engar
messur, engin bók, enginn Guð, enginn gjöld. . .frjáls mæting. .
.skráning hefts síðar.
Ég trúi á mig, mína fjölskyldu og mína vini.
Það sem skiptir máli í þessu þjóðfélagi er það sem
fólkið vill.
. . . og ég vil helvítis einstaklings
trú.
Helvítis trúvillingar . . .
Helvítis hálfvitinn sem fann upp öfgatrú. . .
Helvítis þróun. . . . .
. . . .helvítis einstaklingurinn ég.
»
31.01.2006 11:17:13 / Elli
Varúð ! ! !
Seinna í dag kemur pistill frá mér.
Ég hef ákveðið að láta allt fjúka varðandi trúmál, þeir sem eru
viðkvæmir gagnvart trúmálum eru beðnir fyrirfram um að sleppa því
að lesa pistilinn og halda áfram að lesa sína þykku skáldsögur
(þ.e.a.s. Biblíuna, Kóraninn, og allar hinar, hvað sem þær heita nú
allar.)
Þeir dyggu lesendur eru beðninr velvirðingar á þessarri bið sem
hefur orðið á pistlunum mínum. Þetta eru algjörlega tæknilegir
örðuleikar sem orsaka þessarri bið. (Helvítis blekið búið í
pennanum og þarf að kaupa nýtt tippex)
. . .Helvítis Penninn
. . .Helvítis Spenna og eftirvænting
. . .Helvítis rithöfundurinn ég.
»
17.01.2006 19:55:34 / IcyBoy
ÞAR KOM AÐ ÞVÍ AÐ ÉG FÉKK
NÓG!!! 
(þessi pistill á ekki við um allar konur bara þær sem vilja taka
þetta til sín)
Mér finnst það alltaf
jafn magnað að heyra, þegar konur eru í viðtölum að
tala um
klámvæðinguna.... hvað í andskotanum er klámvæðing og hvaðan kemur
hún???
Er það klámvæðing að
Ísland er orðið það “Liberal” og allar umræður
opnar og menn og
konur tala um allan fjandann í kafftímum og þar á meðal það
hversu oft menn og konur rúnka sér???
Eða er þetta ádeila á
DVD/Video menninguna þannig að núna liggur landinn bara allur
flatur í stofunni og strýkur bibba og klobba þangað til að allt
sullast á teppið og í sófann og á sófaborðið og
borðstofuborðið?
Eða eru þetta illa
fullnægðar kellingar sem annaðhvort kunna ekki eða geta ekki
stundað rúnk og almennilegar ríðingar, það hljómar allavega
þannig???
Ég bara satt að segja
get ekki sagt að ég hafi nokkurn tíðum tímann heyrt karlmann kvarta
yfir klámmyndum og klámblöðum eða berum kerlingum og satt best að
segja er mér andskotans sama hvort heldur er til PORN, PORN eða
PORN.
Það er bara fínt að
sumir og kannski flestir fá eitthvað útúr þessum myndum og blöðum
og húrra fyrir þessu öllu saman því annars væri ég með þær
ranghugmyndir ennþá að ég ætti bara að pissa með helvítis
tillanum.. Og svo er
það nú eitt sem þær segja og það er að verið sé að niðulægja konur
með þessu “BLABLABLA” það getur vel verið að það sé í einhverjum
vanþróuðum ríkjum og 3ja heimslöndum “EN” ekki í þessum almenna
klámbransa... og vitið þið hvað??
KONUR þéna margfalt
meira en karlmaður í þessum bransa “MARGFALT” og það er nú ekki talað um
það!!
Og mjög margar konur eru þarna í
stjórnunarhlutverkum með miklu hærri laun en karlmaðurinn... bæði
fyrir framan og aftan myndavélar... og þið viljið endilega ráðast á
þennan bransa.
Mohammed said, "I was shown the Hell-fire and that the
majority of its dwellers were women who were
ungrateful."
It was asked,
"Are they ungrateful to
Allah?"
He replied,
"They are ungrateful to
their husbands and are ungrateful for
the favors and the charitable deeds done to them. If you
have always been benevolent to one of them and then she sees
something in you not of her liking, she will say, 'I have never
received any good from you.'"
Rauð-sokku-afturbata-kerlinga-pussur þetta sýnir
bara eitt að það er og verður “ALDREI” hægt að gera ykkur til
hæfis þið eru bara framleiddar til að vera alltaf ósáttar og
vilja meira en fyrir ykkur er gert...
Ég legg til að þið takið heila
helvítis helgi undir það að ná ykkur í klámmyndaefni sem dugar
heila helgi og allskonar hjálpartæki ástarlífsins, sleipiefni og
fleira og gera heiðarlega tilraun til að finna út til hvers píkan
ykkar var sett undir ykkur... þá loksins kæmi þróun sem við Elli værum báðir sáttir
við því að Elli segir víst alltaf : “ Öll þróun skilar bara illu og anskotans
óþægindum hjá fólki “

»
13.01.2006 22:44:52 / Haukurinn
Elli þetta er möst í okkar lífi eins bissý og við erum!!!

http://hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1499
»
12.01.2006 08:56:00 / IcyBoy
Fékk þennan link senda í gær og ég bara verð að deial honum með
ykkur njólunum og þetta á að hafa mikið FORVARNARGILDI Gjörið þið
svo vel
http://www.yourfiehost.com/media.php?cat=video&file=arggfatlady.wmv
Kveðja Haukurinn
»
08.01.2006 02:29:39 / Elli
Í dag
bölva ég minni helvítis innri rödd.
Áður fyrr var þetta einfallt, fólk með innri raddir var lokað inni
og fékk viðeigandi rafmagnsmeðferð, með að vísu misjöfnum árangri.
. .en svo kom helvítis þróunin.
“
Öll þróun skilar bara
íllu og anskotans óþægindum hjá fólki
“
Í dag eru alls konar andskotar látnir leika lausum hala, eins og
ég. Ég þjáist af því að hafa innri rödd, sem oftar en ekki kemur
mér í hin verstu helvítis vandamál.
Hlustaðu á þinn innri mann, var marg tuggið í mann í æsku. .
.helvítis æskan. Svo þegar maður hlustar svo á þessa innri rödd
skapast bara vesen og vitleysa.
Að standa í röð í bónus og röddin segir mér að rassin fyrir framan
mig vilji endilega láta klípa í sig, enn eitt helvítis
nálgunarbannið.
Að kaupa lotto miða á laugardögum “þú vinnur”. . .helvítis hálfvita
innri rödd, aldrei unnið.
Út að skemmta mér, þá kemur helvítið og segir mér hvernig allar
stelpurnar séu brjálaðar í mig og að ég sé sterkastur. . .enda
kvöldið laminn og fer einn heim.
Þetta er búið að viðgangast lengi, í skólanum sagði röddin mér að
skrópa, byrja að reykja, drekka áfengi, sofa hjá mis-fallegu
kvenfólki. Seinna fór þetta út í að verða uppáþrengjandi andskoti,
hvergi helvítis friður. Helvítis röddin er farin að hafa áhrif á
mína útlimi líka, vaknandi um miðjar nætur með allt í helvítis
botni og tilbúin að skjóta úr fallbyssunni. . .helvítis röddin að
bulla eitthvað í mínu heilaga.
Ég er búinn að reyna helling til þess að losna við þennan fjanda,
einu sinni fór ég í rafeindarvirkjun og ætlaði bara að bjarga þessu
sjálfur og steikja helvítis röddina úr hausnum, nei önnur helvítis
þróun, það slær bara helvítis taflan út. Einu sinn rakaði ég af mér
allt hárið í febrúar í þeirri von um að helvítið frýsi til dauða. .
.ég fékk bara kvef og leit út eins og ílla þroskuð
gurka.
Svo veit ég ekki hvert þetta helvíti er að stefna, vegna þess að
svo virðist sem helvítið sé alfluttur inn í hausinn á mér, með líka
alla sína fjölskyldu og vini. . .og nú sofna ég ekki fyrir helvítis
kjaftagangi í hausnum á mér.
Það sem skiptir máli í þessu
þjóðfélagi er það sem fólkið vill.
. . . og
ég vil helvítis ró og næði.
Helvítis innri radda andskotar . . .
Helvítis
hálfvitinn sem hætti að nota rafmagnsmeðferð. .
.
Helvítis
þróun. . .
. .
. . . .helvítis félagsskíturinn ég.
»
04.01.2006 15:20:14 / IcyBoy
Jæja núna er komið nýtt ár já alveg rétt það er víst það eina sem
gengur er tíminn... annars verður maður ekkert var við það þar sem
er ALLTAF MYRKUR Á ÞESSU HELVÍTIS SKERI og maður sér ekki á
klukku!!!
Allavega vona ég að allir komi vel undan 2005 og séu feitir og
pattaralegir eftir mikið jólasteikarát og nammi og ísát.
Áramótin voru flott núna það var sprengt upp með tertum og rakettum
f. ca 40.000 og 2005 helvítis helvítið kvatt með stæl og ÞOKKALEGUM
BOMBUM!
Og þið sem eigið það skilið >>> GLEÐILEGT ÁR 2006
»
01.01.2006 06:51:33 / Elli
Í dag bölva ég einu helvítis árinu í viðbót.
Ég vill lýsa yfir samúð minni til ykkar allra þarna úti, því að
þið eruð öll að eldast, komnar hrukkur hjá sumum ykkar og jafnvel
aðrir farnir að lykta.
Gleðilegt nýtt helvítis ár og megi þetta nýja ár vera jafn slæmt
og það fyrra.
Njótið helvítis áramótanna og vonandi drekkið ykkur blindfull og
gerið einhverja helvítis vitleysu, svo að ég enda ekki einn upp með
það að gera eitthvað stupid.
Helvítis Nýárs kveðja frá mér.
helvítis. . .
»
30.12.2005 03:48:56 / Elli
Í dag
bölva ég helvítis vörutalningu.
Áður fyrr
var þetta mjög einfallt, það sem var til, var til sölu. . .en svo
kom helvítis þróunin.
“ Öll þróun skilar bara
íllu og anskotans óþægindum hjá fólki
“
Í dag er
þetta orðið svo helvíti flókið fyrirbæri að telja vörulager, hvað
þá helvítis tvo. Að stemma af tölur, helvítis tölur og stærðfræði.
Og svo á allt þetta helvíti að gerast á engum tíma svo að
minnsta röskun á rekstri verður.
Þegar
öllum þessum helvítis svita er runnið og helvítis rasssærið komið
og lamaðar fætur (sem kannski útskýrir þvag lekann í stólinn) að
sigurhrópið er drepið niður með helvítis innslætti í tölvu. . .af
hverju í andskotanum er ekki búið að finna upp talbúnað þannig að
ég geti bara talað við helvítis riðklumbinn, sem keyptur var í góða
hirðinum á sínum tíma, svo að ég þurfi ekki að slá öllum þessum
andskotans tölum líka inn.
Það versta
við svo allt þetta er að ég á eflaust eftir að dreyma fullt af
einhverjum helvítis reiknings draumum með engum helvítis tilgangi
og rugli fyrir mér þegar geimverurnar eru að senda mér
lottótölurnar í gegnum draumana mína.
Hvaða helvítis hálfvita datt það í
hug að best væri að skila árstölum á áramótum, helvítis hálfviti
sem hefur aldrei átt neina vini og þekkir það ekki að skemmta sér
um áramót, helvítis heiðinn andskoti að trúa ekki á íslensk
áramót.
Ég á eftir að skjóta upp
hurðasprengjum og inni flöskum því allur annar andskoti verður
uppseldur loksins þegar ég losna úr þessarri prísund.
Það
sem skiptir máli í þessu þjóðfélagi er það sem fólkið
vill.
. . . og
ég vil helvítis tölulaus áramót, næst kemur árið . . .
.
Helvítis talningar
hálfvitar . . .
Helvítis
hálfvitinn sem fann upp áramóta talningu. .
.
Helvítis
þróun. . .
. .
. . . .helvítis starðfræðingurinn ég.
»
14.12.2005 02:09:47 / Elli
Í dag
bölva ég helvítis prumpi.
Áður fyrr
þótti það hinn mesti dónaskapur að prumpa, og hvað þá í margmenni.
Fólk lét þennan óþverra bara ekki útúr sér, heldur hélt honum inni
svo árum skipti. . .en svo kom helvítis þróunin.
“ Öll þróun skilar bara
íllu og anskotans óþægindum hjá fólki “
Í dag er
fólk alveg skítsama um það hvar það er statt, ílla lyktandi
hálfvitar í röð einhverstaðar í Bónus. Það er svo mikið sport að
prumpa í dag, það eru samin heilu helvítis lögin um þetta og þeim
svo kennd börnum. Öll þessi helvítis mengun er að fara með þetta
land til helvítis, eins og best má sjá á veðurfarinu hérna.
Ósonlagið er orðið svo þunnt yfir okkur að snjór er bara eitthvað
sem maður sér á gömlum ljósmyndum. Þetta land er farið að vera
blanda af Ástralíu og Amazon, enginn snjór og alltaf helvítis
rigning.
Og til að
toppa allt þetta helvítis mengunar kjaftæði, þá er farið að
framleiða og nota hér á landi metan- gas bíla, já einmitt að dreyfa
nógu mikið úr helvítis menguninni, jafnvel helvítis gulu hálfvita
strætisvagnarnir eru farnir að prumpa gasi.
Ég er viss
um að á komandi árum fær fólk atvinnu við það að prumpa í tankana
hjá fólki. . .fyllann takk. . .helvítis hálfvitar.
Þetta
endar með því að það rifnar gat á ósonlagið og við verðum öll brún
og falleg, kannski smá krispi.
Ílla
lyktandi helvíti, ég er sannfærður um að meirihlutinn að þessu
helvíti kemur frá helvítis hollustufæðinu. Fólk treður í sig heilu
og hálfu dagana, einhverju helvítis beljufæði og skilur svo ekkert
í öllu þessu helvítis lofti.
Ég segi
nei, hingað og ekki lengra, ílla lyktandi andskotar geta bara flutt
til Svíþjóðar til allra hinna ílla lyktandi andskota. Þá fyrst
kemst ég kannski í jólaskap. . .í helvítis snjó.
Það
sem skiptir máli í þessu þjóðfélagi er það sem fólkið
vill.
. . . og
ég vil helvítis jólasnjó.
Helvítis
ílla lyktandi hálfvitar . . .
Helvítis
hálfvitinn sem fann upp prumpið. . .
Helvítis
þróun. . .
. .
. . . .helvítis jólabarnið ég.
»
Síður: 1 2 3 4
|
|